Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi

Le Droit Humain
20. febrúar 2010 kl. 06:56 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Kynningarfundir
Alþjóða Sam-Frímúrarareglan Le Droit Humain
er mannræktarsamtök þar sem karlar og konur starfa saman á jafnréttisgrundvelli samkvæmt siðakerfi frímúrara sem bjóða mönnum táknræna aðferð til að kynnast innri veruleika. Lögð er áhersla á jafnrétti, trúfrelsi og opinn leitandi huga. 
 
Sérstakir kynningarfundir verða laugardaginn 6. mars kl. 14:00
 
Allir velkomnir
 
                                  Reykjavík: Kirkjustétt 2- 6,  Dr. Njörður P. Njarðvík prófessor emeritus og
                                                                                   Kristín Jónsdóttir menntaskólakennari
 
                                  Akureyri: Glerárgata 32,     Margrét Guðmundsdóttir bókavörður og
                                   Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir bókari
 
                                 Egilsstaðir: Frímúrarahúsið, Tjarnarási 6
                                                                                   Guðrún Tryggvadóttir framhaldsskólakennari og
                                                                                   Össur Torfason verslunarmaður.



1. september 2009 kl. 15:46 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Vetrarstarfið hefst

Með lækkandi haustsól en björtum huga hefst starf Reglunnar nú haustið 2009. Það er St. Ýmir sem ríður á vaðið og heldur fyrsta reglulega fund vetrarins mánudaginn 7. september n.k. kl. 19:30. Minnt er á, að St. Ósíris, Embla, Baldur, Ljósfari og Sindri hefja sína fundi kl. 19:00 meðan Ýmir, Fjörgyn og Austri hefja sína fundi kl. 19:30.  Mælst er til þess að systkin séu komin á fundarstað a.m.k. hálftíma fyrir upphaf fundar. 




26. maí 2009 kl. 07:02 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Jóhannesarhátíð á sumarsólstöðum
Jóhannesarhátíð á sumarsólstöðum undir stjórn st. Ljósfara nr 1676 verður haldinn sunnudaginn 21. júní 2009 kl: 17;00 að Kirkjustétt 2-6, 113 Reykjavík. Fundurinn er opinn öllum systkinum en tilkynna þarf þátttöku í kaffi.



26. febrúar 2009 kl. 10:42 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Sambandsþing Sam-Frímúrarareglunnar
Sambandsþing Sam-Frímúrarareglunnar á Íslandi verður haldið laugardaginn 14. mars 2009 kl. 13. að Kirkjustétt 2-6
í Reykjavík.  Aðeins kjörnir fulltrúar hafa atkvæðisrétt á þinginu, en það er opið öllum sy. sem hafa 3°.
Dagskrá:
1. Hefðbundin fundarstörf.
2. Kosið nýtt Sambandsráð.
3. Erindi: "Hugsjón Frímúrara". 
4. Þinginu slitið.
 
 



23. desember 2008 kl. 12:49 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Jóla- og áramótakveðja
 

Kæru systur og bræður.

Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi óskar ykkur og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.




2. desember 2008 kl. 09:02 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Jóhannesarhátíð á vetrarsólstöðum
Jóhannesarhátíð á vetrarsólstöðum verður haldinn sunnudaginn 21. desember 2008 kl. 17:00 að Kirkjustétt 2-6 Reykjavík.
Munið að tilkynna þátttöku.



20. október 2008 kl. 23:02 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Stúkan Baldur - hátíðarfundur
Stúkan Baldur heldur sérstakan hátíðarfund þriðjudaginn 28. október 2008. Fagnað verður 50 ára frímúrarastarfi Heiðursstórmeistara Reglunnar HLB Njarðar P. Njarðvík. Þau systkin sem áforma að mæta á fundinn eru beðin um að staðfesta það við meistara stúku sinnar fyrir nk. fimmtudag 23. október. 


10. september 2008 kl. 16:52 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Breytilegir fundartímar í Stúkum

Á síðasta starfsári tóku nokkrar Stúkur þá ákvörðun að flýta upphafi funda um hálftíma. Stúkurnar funda nú sem hér segir:

Kl. 19:00
Ósíris, Embla, Baldur, Ljósfari og Sindri.

Kl. 19:30
Ýmir, Fjörgyn og Austri.

Systkin eru hvött til þess að sækja fundi í öðrum Stúkum og njóta þess starfs sem þar er unnið.




27. ágúst 2008 kl. 12:13 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
Vetrarstarfið að hefjast

Eftir hefðbundið hlé hefjast reglulegir fundir í Stúkum og Ráðum nú í byrjun september. Ósíris ríður á vaðið og hefur störf þann 9 en síðan fylgir Embla í kjölfarið og svo koll af kolli. Fundaáætlun fyrir allt starfsárið verður komin á vefinn innan skamms en þegar er búið að setja septembermánuð undir tengilinn "Fundaáætlun" hér til vinstri á síðunni.




31. desember 2007 kl. 15:31 - Almennar tilkynningar og fréttir - Bein slóð - Prentvæn útgáfa
THULE nr. 23. Nýr fundartími

Vinsamlega athugið systur og bræður að fundur þann 9.1 2008 í THULE nr. 23 hefst á nýjum tíma eða kl. 19:00.





Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
Kirkjustétt 6 - 113 Reykjavík.
Sími 561-1557. Netfang samfrim@simnet.is