 | | Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
Le Droit Humain
|
|
|
|
Orðaleit í pistlum og greinum
|
|
Velkomin
Tilgangur þessarar vefsíðu er að kynna starf og hugsjónir frímúrara og þá sérstaklega Alþjóða Sam-Frímúrararegluna Le Droit Humain (sem á frönsku merkir mannréttindi eða mannlegt réttlæti). Í þeirri reglu starfa konur og karlar saman á jafnréttisgrundvelli.
Vegna þeirrar leyndar sem hvílir yfir starfi frímúrara hafa orðið til alls konar ranghugmyndir og fordómar. Þar sem frímúrarareglur eru ekki leynireglur heldur reglur með ákveðna leyndardóma, er æskilegt að veita réttar upplýsingar um markmið og starfsemi frímúrara.
Algengust er trúlega sú ranghugmynd að frímúrararegla sé ekkert annað en karlaklúbbur, þar sem áhrifamenn á ýmsum sviðum tengist bræðraböndum til að hjálpa hver öðrum að komast áfram í þjóðfélaginu. Er þá stutt í þá getgátu, að slíkum bræðraböndum fylgi jafnvel misnotkun á aðstöðu en svo er ekki. En finnist einhver dæmi um slíka misnotkun, þá er jafnframt um að ræða ótvíræða misnotkun á reglunni sjálfri og hugsjónum hennar. |
|
Alþjóða Sam-Frímúrarareglan á Íslandi
Kirkjustétt 6 - 113 Reykjavík.
Sími 561-1557. Netfang samfrim@simnet.is
|